|
Myndasíða Selmu Ég set inn ýmsar myndir sem ég á í tölvunni minni, frá ferðalögum, fjölskyldumyndir og djammmyndir. |
|
13.05.2012 19:22MatarboðVinafólk okkar, sem er frá Portúgal, buðu okkur í mat í kvöld að borða hefðbundinn portuúgalskan mat hjá þeim. Við vorum búin að bjóða þeim að borða með okkur nokkrum sinnum og fyrsta skiptið buðum við upp á hangikjöt, svo þau sögðu að þau ætli að bjóða okkur í mat þegar pabbi og amma Inez, konunnar, koma í heimsókn í maí. Það var mjög gaman að smakka matinn hjá þeim. Í forrétt voru þau með snittubrauð með portúgalska pylsur skornar í örþunna sneiða, svissuðum lauk og ólífur kryddaða með hvítlauk og oreganó. Allt saman mjög spennandi til að smakka. Svo var soðið andakjöt blandað saman í hrísgrjón og soðið notað til að gera hrísgrjónin bragðmeiri. Þetta svo sett í ofnfast mót og inn í ofninn. Síðast fengum við kökur í eftirrétt, appelsínuköku og einskonar súkkulaðiköku sem smakkaðist rosalega vel. Okkur var sagt að hvert hérað í Portúgal á sína eigin uppskrift af köku eða bakkelsi og smökkuðum við það sem kom frá þeirra sveit, mætti best lýsa sem vínarbrauð í smákökuformi, en smakkast samt ekki alveg eins. Logi var búinn að biðja um að fá að leika við Manuel í nokkra daga þegar hann loksins gat farið í heimsókn til hans í dag. Svo komum við klst seinna og ég sá strax það var búið að vera svo gaman hjá honum því hann var orðinn sveittur eftir að hafa hlaupið um og hoppað á rúmi með Manuel. Við fengum að heyra að Logi var búinn að tala mikið við pabba og ömmu Inez og þau svöruðu honum á portúgölsku, svo enn sýndi það sig að Loga er nokkuð sama þó fólk tali ekki sama mál en hann, bara að hann fái að spjalla við aðra. Við heilsuðum strax upp á föður og ömmu Inez, en gátum lítið sagt þar sem þau skilja hvorki ensku né norsku. Samtölin við matarborðið gengu mikið út á þýðingar þar sem Inez þýddi fyrir okkur hvað þau sögðu á portúgölsku og eins fyrir föður sinn og ömmu hvað við töluðum um. Harpa var sofandi þegar við komum en þegar hún vaknaði þá fóru þau gömlu að kjá sig framan í hana, svo ég ákvað að leyfa þeim að halda á henni eftir mat. Þá lifnaði heldur betur yfir þeim og amman hafði á orði hvað Harpa væri svo þung. Hrefna og Ari fóru heim á undan okkur. Hrefna var orðin svo þreytt eftir helgarferðina til Svíþjóð með fermingarfræðslunni sinni. Þær voru fjórar saman í herbergi og eflaust hafa þær spjallað svo mikið saman að þær sváfu ekki mikið. Þurrt blogg en langaði að blogga, svo þetta verður að duga. Skrifað af Selma Kaldalóns 08.05.2012 19:39Fyrsta færsla ársinsHugsa sér...... ár og dagar síðan ég skrifaði síðan og það hefur bara heilmikið gerst síðan þá. Ég er búin að eignast stelpu, sem heitir Harpa og fæddist hún eftir 39+5 daga meðgöngu, sumsé 27. febrúar. Hún kom mjög á óvart því við bjuggumst við að ég myndi ganga vel fram yfir tímann eins og með öll hin börnin svo hún átti að koma í mars, en hún vildi greinilega vera í febrúar. Meðgangan hefur verið mjög erfið, svo ég var bara fegin að geta klárað fæðinguna af, eftir að hafa fengið tvisvar flensu, fengið í bakið og verið almennt í slæmu ásigkomulagi frá því í desember og því hreyft mig lítið utanhúss. Reyndar er ég viss um að seinni flensan hafi orðið til þess að Harpa kom fyrr í heiminn, því ég var enn að jafna mig eftir henni þegar ég fór af stað. Harpa fæddist í vatni í litlu íbúðinni eftir 4 og hálfa klst með alvöru verki. Ég vaknaði um morguninn með verki og vissi strax að ég myndi eignast barn seinna um daginn en staðreyndin að Harpa kom seint um kvöldið er sennilega út af því að ég tafði fæðinguna alveg þar til börnin voru komin í pössun og Bjössi kominn heim til að vera hjá mér. Þegar Bjössi var að undirbúa börnin til að fara í nætur gistingu þá fann ég alveg að verkirnir gátu komið með 5 mínútna millibili ef ég labbaði um í íbúðinni, en ég tafði þá allt að 20 mínútur með því að sitja kyrr í sófanum. Svo fór ég fljótlega í baðið eftir að Bjössi var komin heim og þar fæddist Harpa, alveg óvænt, því ljósan var nýbúin að tékka á útvíkkuninni sem var komin upp í 8 þannig að við héldum það væri góð stund í að barnið kæmi. Svo korteri seinna hrópaði ég upp yfir mig að barnið væri að koma svo ljósan stökk fram til mín og rétt náði að halda við kollinn svo ég myndi ekki fæða hana of fljótt, heldur í tveim kollhríðum. Klukkan var 22.35 þegar hún fæddist. Bjössi sótti börnin snemma morguninn eftir svo þau gætu séð nýju systur sína áður en þau færu í skólann og leikskóla. Loga leist ekkert mjög vel á litlu systur og vildi ekkert koma nálægt henni fyrstu dagana. Núna knúsast hann mikið í henni og Harpa er farin að horfa tilbaka til hans og brosa þegar hann er ofan í henni, er orðin 9 vikna. Ég hélt að allt yrði gott hjá mér þegar litla barnið mitt væri loksins orðið fætt og þar með meðgöngunni lokið, en því var fjarri, því ég veiktist þegar hún var 10 daga gömul og var lögð inn á spítala daginn eftir með brjóstasýkingu. Þar lá ég yfir helgina, eða tvær nætur með Hörpu hjá mér og Bjössi gisti hjá mér seinni nóttina. Mamma hans var búin að bóka miða út til okkar löngu áður og kom daginn eftir að ég var lögð inn svo hún var sett í að passa börnin, svo Bjössi gæti verið hjá mér. Svo var ég á sýklalyfjum í eina viku eftir að ég kom heim og hef verið að passa mig síðan að verða ekki of kalt. Núna er Harpa orðin 9 vikna, sefur alla nóttina og dafnar almennt vel. Hún er enn á brjósti og býst ég við að það gangi vel eins og með Loga. Ég er byrjuð að hlaupa þrisvar í viku svo ég er ekki eins hrædd um að veikjast eins og ég var fyrstu vikurnar eftir að hún fæddist. Ég dáist endalaust að henni og sérstaklega mikla og dökka hárinu hennar, sem er þó að lýsast upp. Hún er samt litla dökkhærða barnið mitt miðað við systkinin sín sem eru algjörir glókollar. Logi er mjög ánægður í leikskólanum sínum og hefur eignast vini þar, sérstaklega einn sem heitir Manuel og er sonur uppáhalds fóstrunni á deildinni. Hún og maðurinn hennar eru orðin ágætis vinir okkar, svo strákarnir fá að hittast stundum eftir leikskóla. Mér finnst mjög gaman að taka Hörpu með mér þegar ég fer í leikskólann því stelpurnar á deildinni hans þekkja hana með nafni og vilja alltaf heilsa upp á henni. Það er svo krúttlegt ! Logi er kominn með jafnvægishjól sem honum finnst gaman að hjóla í og er orðinn nokkuð flinkur núna, en vantar þó enn upp á jafnvægið. Hann fer samt næstum allt á hjólinu, hvort sem það er upp eða niður brekkur, torfærur og gangstéttakanta. Ekkert sem stoppar hann í raun :) Já, hér með lýkur fyrstu færslu ársins. Venjulega er ég með ársannál síðasta árs en það verður bara að bíða seinni tíma. Skrifað af Selma Kaldalóns 02.12.2011 10:10Leikskóla-LogiÉg hef svo gaman af því að fara með Loga í leikskólann á morgnana og sjá þar systkini á deildinni sem taka alltaf mjög vel á móti honum. Þau eru ca 3 og 5 ára gömul og koma einhvers staðar frá Afríku. Logi brást lengi vel illa við þeim þegar þau komu hlaupandi til hans og kallandi á hann, svo hann leitaði alltaf í fanginn hjá mér. En svo hefur hann vanist þeim smám saman og er farinn að heilsa þeim líka. Þau hafa oft komið í leikskólann á svipuðum tíma og við og svo var raunin í morgun. Við Logi vorum komin að leikskólanum þegar hann skyndilega snýr til baka út á göngustíginn og kallar "krakkar krakkar". Ég elti hann og sé þau systkinin koma með föður þeirra í leikskólann. Logi hleypur til þeirra og þau á móti honum, svo leiðir stelpan, sem er eldri, Loga til baka í leikskólann og við pabbi þeirra hálf hlæjandi á eftir þeim. Bara yndislegt líf :) Skrifað af Selma Kaldalóns 22.11.2011 16:2026+1Bloggið mitt seinkaði um dag vegna próflestra, en ég tók þó eina ágætis bumbumynd í gær. Litla daman er orðin 26 vikna og hreyfir sig mikið neðarlega þannig að stundum held ég að hún sé með höfuðið þar niðri því ég finn mikið hnoð þar, eða rassinn snýr niður þegar öflug spörk koma. Nú bíð ég spennt eftir tækifæri til að lofa Loga að koma við bumbuna þegar spörkin koma og sjá svo viðbrögðin hans. Hrefna er búin að finna hreyfingar hjá litlu systur sinni meðan við sátum saman og horfðum á sjónvarpið. Reyndar er ágætt að minnast á það að við horfðum á umdeildan þátt Trekant í sjónvarpinu þar sem nokkur tippi voru til sýnis og svo fékk ein kona fullnægingu. Hrefna nýtti tækifærið og spurði út í atriði sem henni datt í hug meðan á þættinum stóð og ég svaraði henni eftir bestu getu. Ágætis leið til að hafa smá kynfræðslu án þess að hreinlega setjast niður og byrja á einhverri pínlegri umræðu um kynlíf. Logi kom víst á óvart í leikskólanum í gær með því að pissa í klósettið þar. Ein starfsstúlkan spurði hann við bleiuskipti hvort hann vildi pissa í klósettið og varð alveg steinhissa þegar hann jánkaði því og pissaði einhverri bunu í klósettið. Hún spurði Bjössa þegar hann kom að sækja Loga hvort við værum byrjuð að venja hann við klósettið, og hafði greinilega ekkert búist við þessu. Hér heima getur Logi verið bleiulaus góðan hluta úr degi án þess að pissa á sig, en þá þurfum við líka að vera dugleg að setja hann á klósettið eða koppinn. Hann fattar nefnilega ekki þegar honum er mál að pissa og þá bleytir hann buxurnar. Við setjum enga sérstaka pressu á hann með að hætta með bleiu en hvetjum hann hins vegar að nota klósettið á morgnana og seinnipart dags og stundum er hann í stuði til þess og stundum vill hann bara vera með bleiu. Ari fór með Bjössa í aðra vinnuferð á föstudaginn var (ég skrifa á þriðjudegi núna) og hjálpaði Bjössa aðeins með vinnuna þegar þeir voru komnir á áfangastað. Nú er ég komin í jólalfrí eftir að hafa tekið próf í morgun. Prófið kom mér á óvart þar sem við fengum 6 klst til að svara einni spurningu, reyndar ítarlega og með rökum, en ég tók mér bara þrjá klst í það. Vona það nægji svo ég falli ekki. Skrifað af Selma Kaldalóns
Flettingar í dag: 36 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 54 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 141797 Samtals gestir: 37855 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:38:24 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Selma KaldalónsTölvupóstfang: selmasilla@gmail.comAfmælisdagur: 9. aprílStaðsetning: ReykjavíkUm: Ég set upp þessa síðu fyrir mig og vini mína og vandamenn, sem hafa áhuga á að skoða myndir og vita meira um mig. Endilega kvittið í gestabók þegar þið komið í heimsókn :)Tenglar
|